Handbolti

Anton og Hlynur dæma í Slóvakíu

Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson eru á leiðinni til Slóvakíu þar sem þeir munu dæma leik í undankeppni HM.

Leikurinn er á milli heimamanna og Hvíta-Rússlands og verður spilað í Kosice þann 9. júní.

Þeir félagar hafa verið duglegir að dæma erlendis og voru á sínu fyrsta stórmóti hjá körlunum í janúar síðastliðnum og stóðu sig með miklum sóma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×