Handbolti

Andersson fer til AG í sumar

Dönsku meistararnir í AG tilkynntu loks í dag að Svíinn Kim Andersson muni ganga í raðir liðsins í sumar. Þetta hefur legið fyrir í margar vikur.

Andersson hefur verið lykilmaður í ótrúlegu liði Kiel síðan árið 2005. Skarð hans verður vandfyllt hjá þýska meistaraliðinu. Kiel fær samt tvo leikmenn frá AG í sumar en bæði Guðjón Valur Sigurðsson og línumaðurinn Rene Toft Hansen hafa samið við Kiel.

Andersson er orðinn 29 ára gamall og hann mun væntanlega deila skyttustöðunni hjá AG með Ólafi Stefánssyni en AG leggur hart að Ólafi að spila áfram með félaginu.

Ólafur hefur ekki enn gert upp hug sinn varðandi framtíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×