Handbolti

Orri Freyr búinn að skrifa undir hjá Viborg

Línumaðurinn Orri Freyr Gíslason er formlega orðinn leikmaður danska liðsins Viborg. Hann skrifaði undir tveggja ára samning í hádeginu í dag.

Orri Freyr fer með fyrrum þjálfara sínum hjá Val, Óskari Bjarna Óskarssyni, til Danmerkur en Óskar var ráðinn þjálfari félagsins á dögunum.

Orri hefur verið einn öflugasti línumaður landsins undanfarin ár og þreytir nú frumraun sína í atvinnumennskunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×