Körfubolti

Wade gæti misst af Ólympíuleikunum

Dwyane Wade lék meiddur meira og minna alla úrslitakeppnina í ár. Hann er meiddur á hné og svo gæti farið að meiðslin geri það að verkum að hann geti ekki spilað með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikunum í London.

Wade fer í ítarlega skoðun á næstunni og svo gæti farið að hann þurfi að leggjast undir hnífinn vegna meiðslanna.

"Ég þarf að taka ákvörðun um hvað sé best fyrir mig að gera. Það skiptir mig máli að ljúka ferlinum vel og í góðu líkamlegu ástandi," sagði Wade.

"Auðvitað dauðlangar mig á Ólympíuleikana en að sama skapi verð ég að taka rétta ákvörðun fyrir mig. Ég og Miami Heat ganga fyrir."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×