Handbolti

Tap í fyrsta leik

Geir Guðmundsson.
Geir Guðmundsson. Mynd/Pjetur
Íslenska U-20 landsliðið í handbolta tapaði sínum fyrsta leik í úrslitakeppni EM sem nú fer fram í Tyrklandi. Strákarnir töpuðu fyrir Dönum með sex marka mun, 28-22.

Staðan var jöfn í hálfleik, 12-12, en í þeim síðari náðu Danir að síga fram úr og vinna sigur.

Næsti leikur Íslands verður gegn Svíum á morgun og lokaleikurinn í riðlinum er gegn Sviss á sunnudaginn. Gera má ráð fyrir því að leikurinn gegn Svíum verði úrslitaleikur fyrir íslenska liðið þar sem tvö lið komast áfram úr riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×