Handbolti

Ivano Balic samningslaus | Orðaður við Berlín

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Króatinn Ivano Balic er samningslaus eftir að samningur hans við Croatia Zagreb rann út í lok júnímánaðar. Félagið hafði ekki efni á að bjóða honum nýjan samning.

Balic er einn allra besti handknattleiksmaður heims en hann er 33 ára gamall. Hann lék með Portland San Antonio á Spáni frá 2004 til 2008 en þess utan ávallt spilað í heimalandinu.

Samkvæmt fjölmiðlum ytra munu þó nokkur félög hafa áhuga á kappanum. Balic hefur verið sterklega orðaður við MSK Veszprem í Ungverjalandi en einnig Barcelona, Paris Handball, AG Kaupmannahöfn og Füchse Berlin. Dagur Sigurðsson þjálfar síðastnefnda liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×