Handbolti

Arnór Atla: Ekkert lið æft jafn vel og við

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Íslendingar mæta Danmörku, Makedóníu, Rússlandi, Chile og Katar á heimsmeistaramótinu á Spáni í janúar en dregið var í riðla í dag. Arnóri Atlasyni líst nokkuð vel á riðilinn.

„Persónulega finnst mér æðislegt að mæta Danmörku þar sem ég hef spilað síðustu sex ár. Frábært að fá að mæta þeim. Makedónía og Rússland eru frábærar handboltaþjóðir sem eru erfiðar og Chile og Katar eigum við að vinna," segir Arnór.

Guðmundur Guðmundsson var hinn hressasti á blaðamannafundinum á Reykjavík Natura í dag og Arnór tók undir það.

„Hann er léttur en kannski fyrst og fremst af því það hefur verið svo rosalega gaman. Við höfum æft vel og æfingar gengið vel. Ég held að ekkert lið hafi æft jafn vel og við. Við erum fullir sjálfstraust og fylgjum svipaðri rútínu og fyrir síðustu leika," segir Arnór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×