Handbolti

Knudsen tryggði Dönum sigur á Spánverjum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Michael Knudsen var hetja Dana þegar liðið vann eins marks sigur, 24-23, á Spánverjum í b-riðli handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í dag.

Knudsen skoraði sigurmarkið af línunni nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Þær sekúndur sem eftir lifðu tókst Spánverjum ekki að nýta sér enda tóku Danir hart á þeim spænsku eins og gengur á lokasekúndum spennandi leikja.

Mikkel Hansen lét tíðindin af gjaldþroti AGK ekki trufla sig og skoraði átta mörk fyrir Dani.

Danir hafa fullt hús stiga eftir sigurinn í b-riðli líkt og Króatar sem unnið hafa báða sína leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×