Íslenski boltinn

Chijindu tryggði Þór þrjú stig á Egilsstöðum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Chijindu skoraði einnig fyrir Þór í sigrinum á Haukum í síðustu umferð.
Chijindu skoraði einnig fyrir Þór í sigrinum á Haukum í síðustu umferð. Nordicphotos/Getty
Chukwudi Chijindu skoraði sigurmark Þórs gegn Hetti þremur mínútum fyrir leikslok í frestuðum leik í 1. deild karla í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Jóhann Helgi Hannesson gestunum yfir á 62. mínútu. Högni Helgason jafnaði fyrir heimamenn úr vítaspyrnu á 80. mínútu áður en Chijindu skoraði sigurmarkið.

Þórsarar eru í 3. sæti deildarinnar með 23 stig. Fjölnir hefur 25 stig í öðru sæti en Þórsarar eiga leik til góða á Fjölnismenn.

Höttur er í botnsæti deildarinnar með tólf stig en pakkinn á botni deildarinnar er afar þéttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×