Handbolti

Arnór spilar í Þýskalandi eða Svíþjóð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór í leik með AG.
Arnór í leik með AG.
Landsliðsmaðurinn Arnór Atlason staðfesti við Vísi í dag að hann væri búinn að útiloka að spila í Danmörku í vetur í kjölfar þess að hann hafnaði tilboði frá Team Tvis Holstebro.

Arnór er í leit að nýju félagi eftir að félag hans, AG, fór á hausinn.

"Það sem er í kortunum hjá mér núna er Þýskaland og Svíþjóð. Þetta er að taka aðeins lengri tíma en ég vonaðist til en það verður að hafa það," sagði Arnór við Vísi en hann var að vonast til þess að ganga frá sínum málum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×