Körfubolti

Pavel verður hvíldur á móti Ísrael á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pavel Ermolinskij í leiknum á móti Serbíu.
Pavel Ermolinskij í leiknum á móti Serbíu. Mynd/Anton
Pavel Ermolinskij verður ekki með íslenska landsliðinu á móti Ísrael í Laugardalshöllinni á morgun en hann er ekki orðinn nógu góður af nárameiðslunum sem hann varð fyrir í upphitun fyrir Slóvakíuleikinn á laugardaginn.

Ákvörðunin um að hvíla Pavel var tekin í samráði við lækni og sjúkraþjálfara en hann hefur verið í meðferð síðan að hann meiddi sig. Vonir standa til þess að Pavel verði orðinn leikfæri fyrir leikinn í Svartfjallalandi á föstudaginn.

Íslenska liðið lék án Pavels og Loga Gunnarssonar í sigrinum á Slóvökum en Logi er orðinn góður af veikindunum og tók fullan þátt í æfingu liðsins í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×