Handbolti

Minden enn stigalaust

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Vilhelm
Vignir Svavarsson og félagar hans í nýliðum Minden töpuðu í kvöld fyrir Gummersbach á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, 31-27.

Vignir skoraði þrjú mörk í leiknum en hann kom til liðsins nú í sumar. Minden tapaði fyrir Füchse Berlin í fyrstu umferð um síðustu helgi og er því enn án stiga eftir fyrstu tvo leikina.

Gummersbach fékk hins vegar sín fyrstu stig á tímabilinu með sigrinum í kvöld. Franska skyttan Kentin Mahe fór á kostum í kvöld og skoraði tólf mörk fyrir Gummersbach í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×