Fótbolti

Babel farinn frá Hoffenheim

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Hollendingurinn Ryan Babel hefur verið leystur undan samningi sínum við þýska úrvalsdeildarfélagið Hoffenheim.

Félagið greindi frá þessu í dag en Babel, sem kom frá Liverpool í fyrra, var ekki lengur í framtíðaráætlunum stjórans Markus Babbel.

Tveir aðrir leikmenn, Isaac Vorsah og Edson Braafheid, eru einnig sagðir á leið frá félaginu í þýskum fjölmiðlum en nú fyrr í sumar var Gylfi Þór Sigurðsson seldur þaðan til Tottenham.

Babel er 25 ára gamall og skoraði sex mörk í 51 leik með Hoffenheim. Samningur hans var til loka tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×