Menning

Viðey er viðkomustaður margra

Uppskeru sumarsins verður fagnað í Viðey næsta laugardag, 8. september.
Uppskeru sumarsins verður fagnað í Viðey næsta laugardag, 8. september.
Töðugjöld verða í Viðey næsta laugardag, 8. september. Þá verður uppskeru sumarsins fagnað að hætti Viðeyinga með þakkargjörð, tilsögn í prúðmannlegri framkomu, fróðleik um kartöflur, haustréttum í pottum og ljósmyndasýningu.

Mikil ánægja hefur verið á meðal gesta sem sótt hafa eyjuna heim í sumar, nánast allir segjast myndu mæla með ferð þangað að því er fram kemur í könnunum sem lagðar voru fyrir úrtak gesta í júní og júlí. Vel yfir fjórtán þúsund gestir komu í Viðey fyrstu sjö mánuði ársins og voru Íslendingar fjölmennastir eða tæplega fjörutíu af hundraði.

Mikið hefur verið lagt upp úr að auka þjónustu við gesti í Viðey með vegvísum með fróðleik um eyjuna. Tekið er á móti skólabörnum þar á vorin, flestar helgar sumarsins er eitthvað að gerast og veitingahúsið í Viðeyjarstofu hefur verið opið alla daga vikunnar. Skemmti- og fróðleiksgöngur á þriðjudagskvöldum hafa verið vinsælar og fullt út úr dyrum á tónleikum.

Stefnt er að því að halda tónleika einn fimmtudag í mánuði fram eftir vetri. Viðeyjarferjan siglir alla daga vikunnar út í eyju allan september, eftir það mun hún sigla um helgar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×