Handbolti

Öruggur sigur Vals í Meistaraleiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir. Mynd/Vilhelm
Valur vann tíu marka sigur á ÍBV, 29-19, í Meistarakeppni HSÍ í kvöld. Eyjastúlkur voru þó með yfirhöndina í hálfleik, 15-14.

Það dugði þó skammt því ÍBV skoraði aðeins fjögur mörk í seinni hálfleik gegn fimmtán hjá Val.

Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoruði sex mörk hvor fyrir Val og Hrafnhildur Ósk Skúladóttir fimm.

Grigore Gorgata skoraði níu mörk fyrir ÍBV og var langmarkahæst.

Mörk Vals: Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 6, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 6, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 5, Karólína B. Lárudóttir 4, Dagný Skúladóttir 4, Rebekka Rut Skúladóttir 2, Íris Ásta Pétursdóttir 1, Hildur Marín Andrésdóttir 1.

Mörk ÍBV: Grigore Gorgata 9, Drífa Þorvalsdóttir 4, Simona Vintale 3, Sóley Haraldsdóttir 2, Ivana Mlenovic 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×