Handbolti

Ísland tapaði öllum leikjunum í Tékklandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Pjetur
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði í dag með sjö mörkum gegn Tékkum 28-21 á æfingamóti í Tékklandi. Liðið tapaði öllum þremur leikjum sínum á mótinu.

Tékkar höfðu forystu 13-10 í hálfleik og unnu öruggan sigur. Stella Sigurðardóttir skoraði fimm mörk fyrir Ísland og Guðný Jenný Ásmundsdóttir varði 13 skot í markinu.

Íslenska liðið steinlá á fimmtudag gegn Ungverjum og tapaði svo með einu marki gegn Slóvakíu í gær.

Mörk Íslands skoruðu: Stella Sigurðardóttir 5, Hrafnhildur Skúladóttir 4, Dagný Skúladóttir 3, Hanna G. Stefánsdóttir 3, Ásta Birna Gunnarsdóttir 2, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2, Karólína Gunnarsdóttir 1 og Ragnhildur Guðmundsdóttir 1.

Guðný Jenný Ásmundsdóttir varði 13 skot og Sunneva Einarsdóttir 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×