Handbolti

Stórsigur hjá Parísar handboltaliðinu í fyrsta leik - sjö íslensk mörk

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson. Mynd/DIENER/Leena Manhart
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Róbert Gunnarsson og félagar í Paris SG byrjuðu tímabilið vel eða með því að vinna ellefu marka sigur á Cesson-Rennes, 34-23, í fyrstu umferð frönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld.

Róbert Gunnarsson skoraði 4 mörk í leiknum og Ásgeir Örn Hallgrímsson var með 3 mörk. Danska stórskyttan Mikkel Hansen skoraði 5 mörk. Markahæsti leikmaður liðsins var þó franski hornamaðurinn Luc Abalo með 8 mörk.

Parísarliðið var 15-12 yfir í hálfleik en liðið missti aldrei forystuna i leiknum eftir að Róbert kom liðinu í 8-7 eftir 13 mínútna leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×