Handbolti

Ólafur Bjarki og Ernir á toppnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Bjarki í leik með HK á síðasta tímabili.
Ólafur Bjarki í leik með HK á síðasta tímabili.
Emsdetten er með fullt hús á toppi þýsku B-deildarinnar í handbolta en liðið vann í dag sigur á Hildesheim, 28-25, á útivelli.

Ólafur Bjarki Ragnarsson og Ernir Arnarsson skoruðu báðir fjögur mörk fyrir Emsdetten sem skoraði fjögur af fimm síðustu mörk leiksins. Staðan í hálfleik var 12-12.

Emsdetten er með tíu stig á toppnum en Bergischer og Eisenach koma næst með átta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×