Handbolti

Karabatic gæti verið á leið í fangelsi

Besti handknattleiksmaður heims, Nikola Karabatic, gæti átt yfir höfði sér þriggja til fimm ára fangelsisdóm en hann, ásamt mörgum öðrum, er grunaður um að hafa hagrætt úrslitum leiks á síðustu leiktíð.

Lið Karabatic, Montpellier, tapaði mjög óvænt lokaleik sínum í frönsku deildinni á síðustu leiktíð gegn lélegasta liði deildarinnar og er grunur um að það hafi verið gert viljandi svo ættingjar leikmanna gætu grætt pening með því að veðja á hitt liðið.

Eftir leik Montpellier og Paris Handball um helgina fór lögreglan með Karabatic og marga liðsfélaga hans til yfirheyrslu. Þar á meðal bróðir hans, sem einnig leikur með Montpellir.

Málið hefur vakið griðarlega athygli í Frakklandi og verður væntanlega vel fylgst með framvindu mála næstu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×