Handbolti

Þórir og félagar með fullt hús í Meistaradeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir Ólafsson.
Þórir Ólafsson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Þórir Ólafsson og félagar í pólska liðinu Vive Targi Kielce eru að byrja vel í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en liðið vann sex marka heimasigur á Gorenje frá Slóveníu, 30-24, fyrir framan 4200 manns í Kielce í dag.

Vive Targi Kielce fékk mótspyrnu frá Slóvenunum í fyrri hálfleik og var 13-12 yfir í hálfleik. Pólska liðið sýndi hinsvegar styrk sinn í seinni hálfleik og vann góðan sigur.

Þórir Ólafsson skoraði eitt mark í leiknum en hann fær ekki eins mikið að spila og Króatinn Ivan Cupic sem var með 3 mörk. Michael Jurecki var markahæstur með átta mörk.

Vive Targi Kielce er búið að vinna alla þrjá leiki sína af öryggi en liðið vann danska liðið Bjerringbro-Silkeborg og rússneska liðið St. Petersburg í fyrstu tveimur leikjum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×