Handbolti

Karabatic valinn í franska landsliðið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Claude Onesta, þjálfari franska landsliðsins, hefur kallað á Nikola Karabatic í lið sitt fyrir leikina sem eru fram undan í undankeppni EM 2014.

Karabatic hefur hvorki æft né keppt með liði sínu, Montpellier, síðan hann var einn þeirra leikmanna liðsins sem voru handteknir fyrr í haust.

Fjölmörgum leikmönnum liðsins er gefið að sök að hafa veðjað á leik með Montpellier á síðustu leiktíð sem liðið hafi svo tapað viljandi.

Fyrr í dag var greint frá því að Karabatic hafi fengið leyfi lögreglu til að æfa með liði sínu á ný, en hann mátti ekki eiga samskipti við aðra sakborninga á meðan rannsókn málsins stóð yfir.

Samuel Honrubia, sem einnig var handtekinn vegna málsins, var þó ekki valinn í landsliðið. Frakkar mæta Litháen á fimmtudaginn og svo Tyrklandi á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×