Handbolti

Kiel vann stórsigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Kiel skellti sér á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld með öruggum tólf marka sigri á Balingen, 34-22.

Kiel er með 23 stig og á eins stigs forystu á Rhein-Neckar Löwen sem á þó leik til góða. Löwen hefur enn ekki tapað stigi á tímabilinu.

Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk fyrir Kiel í kvöld og Guðjón Valur Sigurðsson tvö. Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins.

Hamburg vann svo nauman sigur á Lübbecke, 33-32, en liðið er í fjórða sæti deildarinnar með sextán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×