Handbolti

Björgvin Páll fer frá Magdeburg í sumar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Björgvin Páll í leik með Magdeburg.
Björgvin Páll í leik með Magdeburg.
Björgvin Páll Gústavsson mun fara frá þýska úrvalsdeildarfélaginu Magdeburg þegar að tímabilinu lýkur í vor.

Þetta kemur fram á vef félagsins. Félagið hefur samið við annan markvörð, Þjóðverjann Dario Quenstedt, sem er reyndar uppalinn hjá Magdeburg en leikur nú með Lübbecke.

Björgvin Páll kom til félagsins sumarið 2011 frá Kadetten Schaffhausen í Sviss og þarf nú að leita sér að nýju félagi.

Hann er nú frá keppni þar sem hann hefur verið að glíma við fylgigigt eftir að hafa fengið salmonellusýkingu fyrr í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×