Íslenski boltinn

Þú veist aldrei hver á eftir að skara fram úr

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson. Mynd/Stefán
„Hættan er að þjálfarar yngstu barnanna vilji vinna leiki eða mót, oft undir pressu frá foreldrum, og velji þá sterkari og fljótari sem yfirleitt eru fæddir snemma á árinu. Þeir krakkar fá svo meiri athygli þjálfarans sem stjórnar stundum A-liðinu en lætur aðstoðarmenn um að stjórna hinum liðunum.," segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri Knattspyrnusambands Íslands. Hann segir þjóðfélagið vissulega ósanngjarnt gagnvart börnum fædd seint á árinu.

Sigurður Ragnar segir lykilatriði að félögin og þjálfarar séu meðvituð um vandamálið. Meiru máli skipti að sýna öllum leikmönnum athygli enda sé engin leið að vita hvaða börn muni skara fram úr síðar meir. Hann nefnir knattspyrnukempurnar Eyjólf Sverrisson, Hermann Hreiðarsson og Tryggva Guðmundsson sér til stuðnings.

„Alfreð Finnbogason var líka varamaður í 3. flokki og framan af 2. flokki. Ástæðan var að þjálfaranum fannst hann of lítill. Hann var síðar valinn efnilegastur og bestur í efstu deild, komst í atvinnumennsku og er í A-landsliðinu," segir Sigurður Ragnar. Sigurður Ragnar segir ekki síður mikilvægt að foreldrar átti sig á því að líkamsþroski barna jafnist út þegar leikmenn verða eldri. Þá skipti meiru máli að vera með góða tækni, sendingargetu, leikskilning og rétt hugarfar. Oftar en ekki skari leikmenn fæddir síðar á árinu fram á þessu sviði þar sem þeir hafa þurft þess til í samkeppni við líkamlega sterkari og fljótari leikmenn fæddir fyrr á árinu.

Hann bendir á að fæðingardagsáhrifin séu alls ekki bundin við íþróttir heldur sé þau einnig að finna í skólakerfinu.

„Börn fædd seint á árinu eru líklegri til þess að vera með lægri meðaleinkunn, þurfa sérkennslu, hafa lægra sjálfsmat og sjálfstraust auk þess sem þau leggja síður stund á íþróttir," segir Sigurður Ragnar meðvitaður um mikilvægi þess að börn haldist sem lengst í íþróttum.

„Ef pressan á þjálfaranum er minni að vinna titla í stað þess að þróa leikmanninn áfram verður minna um fæðingardagsáhrif. Ef úrslitin eru ekki aðalatriðið dreifist spiltíminn og athygli þjálfarans betur og eftir stendur breiðari leikmannahópur vegna minna brottfalls."

kolbeinntumi@365.is


Tengdar fréttir

Forréttindi að fæðast snemma á árinu

Óvenjuhátt hlutfall drengjanna sem skipa stórefnilegt landslið Íslands 17 ára og yngri, sem hefur leik í úrslitakeppni Evrópumótsins á morgun, eru fæddir á fyrri hluta ársins. Í átján manna hópi eiga fimmtán afmæli í júní eða fyrr. Fæðingardagurinn getur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×