Handbolti

Draumariðill í Lundúnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson mun að öllum líkindum ljúka glæsilegum landsliðsferli á Ólympíuleikunum í Lundúnum í sumar.
Ólafur Stefánsson mun að öllum líkindum ljúka glæsilegum landsliðsferli á Ólympíuleikunum í Lundúnum í sumar. Mynd/AFP
Í gær var dregið í riðla fyrir handboltakeppnina á Ólympíuleikunum í Lundúnum í sumar. Liðunum tólf sem höfðu tryggt sér þátttökurétt á leikunum var skipt í tvo riðla og er óhætt að fullyrða að Ísland hafi lent í „léttari" riðlinum þar sem gríðarsterk lið skipa hinn riðilinn.

Ísland er í A-riðli með Frakklandi, Svíþjóð, Túnis, Argentínu og Bretlandi. Argentína var í sama styrkleikaflokki og Evrópumeistarar Danmerkur, þó svo að mikill getumunur hafi verið á þessum liðum undanfarin ár. Danir voru til að mynda afar ósáttir við það hlutskipti að teljast jafnir liði Argentínu að styrkleika – sem þó er Suður-Ameríkumeistari. Það lá því fyrir að liðin myndu dragast hvort í sinn riðil.

Bretland, sem var með Serbíu í styrkleikaflokki, fékk svo að velja sér riðil þegar búið var að draga úr öðrum styrkleikaflokkum. Það kom ekki á óvart að Dragan Djukic, landsliðsþjálfari Breta, valdi að spila frekar við Suður-Ameríkumeistarana en Evrópumeistarana.

Frakkland, Svíþjóð og Túnis eru einnig í riðli með Íslandi en fjögur efstu liðin munu komast áfram í fjórðungsúrslit. Skiptir máli að lenda eins ofarlega og mögulegt er til að sleppa við sterkustu liðin úr B-riðlinum strax í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.

Ef Ísland kemst áfram upp úr riðlakeppninni er ljóst að það verður erfið leið sem bíður strákanna ætli þeir sér að komast aftur alla leið í úrslitaleikinn, rétt eins og í Peking fyrir fjórum árum síðan. Fimm sterkar Evrópuþjóðir eru í B-riðli auk Asíumeistara Suður-Kóreu sem hefur ávallt reynst hættulegur andstæðingur. Má búast við harðri baráttu um efstu fjögur sætin í þeim riðli.

Ólympíuleikarnir hefjast föstudaginn 27. júlí og keppni í handbolta karla tveimur dögum síðar. Keppt verður annan hvorn dag frá því en úrslitaleikurinn verður háður sunnudaginn 12. ágúst, á lokakeppnisdegi leikanna.

Íslenska landsliðið hefur ekki undirbúning sinn fyrir leikana fyrr en eftir að leikjum Íslands gegn Hollandi í undankeppni HM 2013 lýkur. Fyrri leikurinn fer fram 10. júní hér heima og sá síðari í Hollandi sex dögum síðar.

Þessa dagana er keppnistímabilinu í atvinnumannadeildunum í Evrópu að ljúka og fá því flestir landsliðsmanna Íslands frí í aðeins nokkra daga áður en þeir hefja æfingar með landsliðinu hér á landi.

Ekki náðist í landsliðsþjálfarann Guðmund Guðmundsson í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×