Íslenski boltinn

Kristján Finnbogason er konungur vítakeppna á Íslandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristján Finnbogason varði þrjú síðustu víti FH-inga.
Kristján Finnbogason varði þrjú síðustu víti FH-inga. Mynd/Vilhelm
Kristján Finnbogason varð 41 árs í síðasta mánuði en tók sig samt til og bætti enn við metaskrá sína í bikarleik Fylkis og FH í 32 liða úrslitum Borgunarbikarsins á föstudaginn. Kristján varði þrjár síðustu spyrnur FH-inga í vítakeppninni og tryggði Fylki sæti í sextán liða úrslitum keppninnar aðeins sex dögum eftir að liðið tapaði 8-0 fyrir FH á sama stað í deildinni.

Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn sem Kristján sýnir snilli sína í vítakeppnum og það er orðið óhætt að kalla hann konung vítaspyrnukeppna á Íslandi. Kristján hefur nefnilega unnið allar fjórar vítakeppnir sínar í aðalkeppni bikarsins og þetta var í þriðja sinn sem hann ver tvö víti eða fleiri í vítakeppni.

Kristján vann einnig vítakeppni í 8 liða úrslitum 2006, 16 liða úrslitum 2005 og í 8 liða úrslitum 1995 en í öll þau skipti var hann markvörður KR-liðsins.

Kristján hefur gert gott betur en að stoppa vítaspyrnur andstæðinganna því hann hefur einnig skorað sjálfur í tveimur vítakeppnum. Kristján hefur samtals varið 8 af 19 vítaspyrnum sem hann hefur reynt við í vítakeppnum í aðalkeppni bikarsins en það gerir magnaða 42 prósent markvörslu.

Kristján komst í hóp með fjórum öðrum markvörðum sem hafa náð að verja þrjú víti í einni vítaspyrnukeppni en það eru þeir Gunnleifur Gunnleifsson (FH-Breiðablik 3-1, 2010), Amir Mehica (Haukar-Fram 4-3, 2007), Sandor Matus (KA-ÍBV 3-0, 2004) og Þorsteinn Bjarnason (Keflavík-Selfoss 2-1, 1990).

Kristján setti einnig nýtt met með því að verða fyrsti markvörðurinn til að verja tvo víti eða fleiri í þremur vítakeppnum. Hann átti áður metið með þeim Bjarna Sigurðssyni (1984 og 1990) og Hauki Bragasyni (1994).

KR-ingar hafa sem dæmi farið í eina vítakeppni eftir að Kristján missti sæti sitt í aðalliðinu og sú vítakeppni tapaðist 0-3 á móti Val árið 2007.

Vítakeppnir Krisjáns Finnbogasonar í aðalkeppni bikarsins:2012 með Fylki á móti FH

Varði 3 af 5 spyrnur, Fylkir vann 3-2

2006 með KR á móti ÍBV

Varði 1 af 4 spyrnum, KR vann 4-2

2005 með KR á móti Víkingi

Varði 2 af 7 spyrnum, KR vann 6-5

1995 með KR á móti Þór Ak.

Varði 2 af 3 spyrnum, KR vann 3-1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×