Blóðug saga um bruggara 20. september 2012 11:00 Bondurant-bræðurnir brugga spíra á bannárunum í Bandaríkjunum og láta hart mæta hörðu þegar spilltur lögreglumaður heimsækir heimabæ þeirra.
Lawless verður frumsýnd í kvikmyndahúsum annað kvöld. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum og skartar Tom Hardy og Shia LaBeouf í aðalhlutverkum. Bondurant-bræðurnir brugga vín á kreppu- og bannárunum í Bandaríkjunum þegar sala á áfengi er ólögleg. Bræðurnir þrír eru sagðir framleiða besta spírann í Virginíufylki en þegar spilltur lögreglumaður birtist í bænum og heimtar mútugreiðslur taka bræðurnir höndum saman við aðra bruggara og láta hart mæta hörðu. Þrátt fyrir hrottaskap sinn fara bræðurnir ekki varhluta af ástinni því tveir þeirra, Forrest og Jack, verða ástfangnir, Jack af dóttur prests og Forrest af þjónustustúlkunni Maggie. Fjöldi gæðaleikara fer með aðalhlutverk í kvikmyndinni og eru það Tom Hardy, Shia LaBeouf og Jason Clarke sem leika þá Bondurant-bræður. Guy Pearce fer með hlutverk lögreglumannsins Charlies Rakes, Gary Oldman leikur glæpaforingjann Floyd Banner og Dane DeHaan fer með hlutverk vinar bræðranna, Crickets Pate. Jessica Chastain leikur Maggie Beauford og Mia Wasikowska bregður sér í hlutverk prestsdótturinnar Berthu Minnix. Lawless er byggð á skáldsögunni The Wettest County In The World eftir Matt Bondurant og er það tónlistarmaðurinn Nick Cave sem skrifar handrit myndarinnar. Þetta er í annað sinn sem kvikmynd er gerð eftir handriti Cave. Fyrri myndin kom út árið 2005 og nefnist The Proposition. Í henni leikur Guy Pearce einnig aðalhlutverkið, ástralska útlagann Charlie Burn sem var hundeltur af lögreglunni. Lawless var frumsýnd á Cannes-kvikmyndahátíðinni í vor og var á meðal þeirra kvikmynda sem kepptu um Gullpálmann, en það var austurríska kvikmyndin Amour sem fór með sigur af hólmi. Lawless hefur fengið ágæta dóma og á kvikmyndasíðunni Rottentomatoes.com fær hún 65 prósenta ferskleikastig frá gagnrýnendum og 81 prósent frá áhorfendum. Myndinni er lýst sem hrottalegri, blóðugri og meingallaðri og sagt er að hún geti seint talist epískt meistaraverk, en að kvikmyndatakan og leikurinn séu of áhrifamikil til að hægt sé að afskrifa hana.
Menning Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið Myndasyrpa úr Bakgarðshlaupinu Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Krakkatían: Dýrin, heimsálfur og teiknimyndir Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira