Handbolti

Danir fullir sjálfstrausts á HM

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Danir unnu alla þrjá leiki sína á æfingamóti sem fór fram í Danmörku um helgina, síðast gegn Slóveníu í gær, 35-30.

Danir unnu einnig stórsigra á Túnis og Svartfjallalandi um helgina og ljóst að Evrópumeistararnir eru í fínu formi fyrir HM sem hefst á föstudaginn.

Ísland er í B-riðli með Danmörku og þessi lið mætast í næstsíðustu umferð riðlakeppninnar, þann 16. janúar. Ísland hefur leik gegn Rússum á föstudag en Danir mæta þá Katarbúum.

Mikkel Hansen skoraði sjö mörk fyrir Dani í gær en Hans Lindberg, sem var markahæstur í hinum tveimur leikjunum, náði sér ekki eins vel á strik í gær og skoraði aðeins eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×