Handbolti

Guðmundur Árni og félagar unnu góðan sigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Árni Ólafsson.
Guðmundur Árni Ólafsson. Mynd/Daníel
Guðmundur Árni Ólafsson skoraði tvö mörk fyrir danska liðið Bjerringbro SV vann eins marks heimasigur á Gorenje Velenje frá Slóveníu, 27-26, í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í handbolta.

Guðmundur Árni og félagar hafa þegar tryggt sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar en þeir fengu sæti í Meistaradeildinni þegar AG Kaupmannahöfn varð gjaldþrota.

Danski landsliðsmaðurinn Rasmus Lauge var markahæstur í Bjerringbro-liðinu með sjö mörk. Bjerringbro SV var tveimur mörkum undir í hálfleik, 12-14, en vann seinni hálfleikinn 15-12.

Bjerringbro SV hefur unnið 4 af 9 leikjum sínum og er með sex stigum meira en Chambéry Savoie og St. Petersburg sem geta því bæði ekki náð danska liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×