Handbolti

Gunnar Steinn með fjögur í flottum Evrópusigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnar Steinn Jónsson
Gunnar Steinn Jónsson Mynd/Valli
Gunnar Steinn Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir franska liðið HBC Nantes þegar liðið vann sjö marka heimasigur á tyrkneska liðinu Besiktas, 31-24, í kvöld í riðlakeppni EHF-bikarsins í handbolta.

HBC Nantes hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í riðlinum alveg eins og Björgvin Páll Gústavsson og félagar í Magdeburg sem unnu rúmenska liðið Stiinta Dedeman Bacau í gær. HBC Nantes vann rúmenska liðið með þremur mörkum um síðustu helgi.

HBC Nantes var sex mörkum yfir í hálfleik, 16-10, en það voru bara tveir leikmenn franska liðsins sem skoruðu meira en íslenski leikstjórnandinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×