Haukakonur stöðvuðu sigurgöngu KR en eru samt úr leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2013 21:16 Margrét Rósa Hálfdanardóttir Mynd/Vilhelm
Haukakonur eiga ekki lengur möguleika á sæti í úrslitakeppninni þrátt fyrir sex stiga sigur á KR, 71-65, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í kvöld. KR-konur voru búnar að vinna níu leiki í röð fyrir leikinn. Haukar urðu að treysta á það að Valskonur tækist ekki að vinna Keflavík á sama tíma en það gerði Valsliðið hinsvegar og því munar fjórum stigum á liðunum þegar aðeins ein umferð er eftir. Haukar geta því ekki lengur náð 4. sætinu sem er það síðasta sem gefur sæti í úrslitakeppninni. Siarre Evans var með 26 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar hjá Haukum, Margrét Rósa Hálfdanardóttir skoraði 15 stig og Gunnhildur Gunnarsdóttir var með 13 stig og 7 fráköst. Shannon McCallum var með 24 stig og 13 fráköst hjá KR og Sigrún Ámundadóttir bætti við 19 stigum. KR-liðið byrjaði vel og var 18-13 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Haukakonur spiluðu frábærlega í öðrum leikhlutanum sem þær unnu 30-11 og náðu með því fjórtán stiga forskoti fyrir hálfleik, 43-29. KR tókst reyndar að vinna upp muninn í seinni hálfleik og komast yfir í 63-61 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Haukakonur voru hinsvegar sterkari á lokamínútunum sem þær unnu 10-2 og tryggðu sér sigur.Haukar-KR 71-65 (43-29)Haukar: Siarre Evans 26/8 fráköst/8 stoðsendingar, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 15/4 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 13/7 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 10/5 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 3, Lovísa Björt Henningsdóttir 2, María Lind Sigurðardóttir 2.KR: Shannon McCallum 24/13 fráköst/6 stoðsendingar/5 stolnir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 19/8 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 6/10 fráköst, Rannveig Ólafsdóttir 5, Helga Einarsdóttir 5/10 fráköst, Sara Mjöll Magnúsdóttir 4, Björg Guðrún Einarsdóttir 2.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Í beinni: KA - Víkingur | Á sama tíma að ári Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira