Handbolti

Fremsti handboltamaður sögunnar?

Mars 1995 - Íslandsmeistari með Val. Ólafur skoraði átta mörk í fimmta leik Vals og KA um Íslandsmeistaratitilinn. Valur vann 30-27 eftir framlengingu og mikla dramatík. Titillinn var sá þriðji í röð hjá Valsmönnum sem unnu aftur árið eftir. Þá hélt Ólafur í atvinnumennsku.
Mars 1995 - Íslandsmeistari með Val. Ólafur skoraði átta mörk í fimmta leik Vals og KA um Íslandsmeistaratitilinn. Valur vann 30-27 eftir framlengingu og mikla dramatík. Titillinn var sá þriðji í röð hjá Valsmönnum sem unnu aftur árið eftir. Þá hélt Ólafur í atvinnumennsku. Mynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Ólafur Stefánsson er ekki aðeins besti handboltamaður sem Ísland hefur átt heldur mögulega sá fremsti sem iðkað hefur íþróttina. Sá örvhenti leikur kveðjuleik sinn með íslenska landsliðinu gegn Rúmeníu í kvöld fyrir fullri Laugardalshöll.

Af nógu er að taka þegar ferill Ólafs er rifjaður upp. Hér má sjá myndir frá eftirminnilegum augnablikum á ferli okkar fremsta handboltamanns.

Leikur Ísland og Rúmeníu í undankeppni EM hefst klukkan 19.45 í kvöld. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á Vísi.

Maí 1997 - Kominn í aðalhlutverk. Ólafur fór fyrir landsliðinu sem tryggði sæti sitt á heimsmeistaramótinu í Kumamoto í Japan í árslok 1996. Hann fór á kostum á mótinu líkt og félagar hans. Ísland hafnaði í fimmta sæti sem er enn besti árangur liðsins á HM.Mynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Maí 2001 - Þýskalandsmeistari. Ólafur og Stefan Kretzschmar fallast í faðma eftir að meistaratitillinn var í höfn. Magdeburg lagði Felnsburg 30-23 í hreinum úrslitaleik þar sem Ólafur skoraði níu mörk og var bestur á vellinum.Bongarts/Getty Images
Maí 2006 - Evrópumeistari. Ólafur vann Meistaradeildina þrívegis með spænska liðinu Ciudad Real árið 2006,2008 og 2009. Þá vann hann keppnina með Magdeburg árið 2002. Ólafur var ávallt í lykilhlutverki í úrslitaleikjunum.Fréttablaðið/Vilhelm
Janúar 2008 - Eftirsóttur. Ólafur sinnir aðdáendum sínum að loknum 32-30 sigurleik gegn Tékkum í Laugardalshöll. Landsliðið spilaði 38 leiki á árinu eftirminnilega. Illa gekk á Evrópumótinu en svo komu Ólympíuleikar í Peking.Fréttablaðið/Valli
Ágúst 2008 - Leiðtoginn. „Þetta átti bara að gerast einhvern veginn. Mér líður eins og Morfeusi. Mér líður ógeðslega vel í þessari keppni.“ Ólafur fór á kostum í viðtölum í Peking.Fréttablaðið/Vilhelm
Ágúst 2008 - Hylltir. Um 40 þúsund manns hylltu strákana okkar á Arnarhóli við komuna heim frá Kína.Fréttablaðið/Pjetur
MAÍ 2009 - Bestir. Gerome Fernandez heldur á Ólafi eftir sigur Ciudad Real á Kiel í úrslitum Meistaradeildar. Ólafur var bestur á vellinum og skoraði 8 mörk.nordicphotos/getty
Ágúst 2012 - Vonbrigði. Ólafur segir tapið í átta liða úrslitum Ólympíuleikanna í London gegn Ungverjum köldustu vatnsgusu í andlitið á ævi sinni.Fréttablaðið/Valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×