Handbolti

Fannst hann vera í landsliðinu á röngum forsendum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafur Stefánsson í Peking árið 2008.
Ólafur Stefánsson í Peking árið 2008. Mynd/Vilhelm
„Það var eiginlega í samningi að ég fengi að spila mikið, ég vældi um það. Svo er ég auðvitað mjög þakklátur fyrir það að strákarnir skuli vera búnir að tryggja sér þátttökurétt á næsta EM. Þá get ég skotið 15 sinnum framhjá og „no hard feeling"," segir Ólafur Stefánsson í viðtali við Monitor.

Ólafur verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu í handbolta í síðasta skipti á sunnudag þegar Rúmenar koma í heimsókn. Jafntefli eða sigur tryggir Íslandi sigur í riðlinum.

Ólafur fer um víðan völl í viðtalinu. Hann minnist meðal annars fyrstu ára sinna í íslenska landsliðinu. Hann segist hafa verið svolítið hræddur og ekki áttað sig á því hvers vegna hann væri í liðinu til að byrja með.

„Hvað er ég að gera hérna?" hugsaði Ólafur með sjálfum sér. „Ég hélt alltaf að ég væri eiginlega í landsliðinu undir fölsku flagi fyrstu 7-8 árin mín. Að ég væri bara valinn af því að það vantaði örvhenta menn og eitthvað en um síðir myndi einhvern veginn komast upp um mig, að ég gæti ekkert," segir Ólafur.

Hann segist fyrst hafa farið að hafa trú á sjálfum sér þegar hann var um 27-28 ára.

„En kannski var það pælingin hjá vitrari mönnum en mér að ég þyrfti að gera vitleysur í nokkur ár til að vera tilbúinn sirka '97, ætli það ekki. Takk fyrir það," segir Ólafur.

Hann segist hlusta á alla gagnrýni þó hann taki mun meiri gagnrýni á mentorum sínum en öðrum. Hann hafi oft verið gagnrýndur fyrir að skjóta lítið og fyrir þá gagnrýni þakki hann. Þá rifjar hann upp gagnrýni frá árinu 2006 sem hann var afar sáttur við.

„Árið 2006 í Sviss las ég einhverja krítík um að ég hefði þá verið búinn að spila mjög illa í tæp tvö ár og það er ein besta lesning sem ég hef lesið. Hún vakti mig og ég las þetta bara og hugsaði: „Ertu ekki að grínast hvað hann hefur rétt fyrir sér?" Það var frábært," segir Ólafur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×