Körfubolti

Westbrook hjálpaði stuðningsmanni með bónorð

Russell Westbrook.
Russell Westbrook.
Stjarna Oklahoma Thunder, Russell Westbrook, sinnir ýmsu á meðan hann jafnar sig eftir aðgerð. Meðal annars hjálpar hann stuðningsmönnum Thunder að gifta sig.

Charlie Bright er eldheitur stuðningsmaður Thunder og hann fór með unnustu sína, Rachel Haycraft, á leik með Thunder á fyrsta stefnumóti þeirra.

Sambandið hefur gengið vel síðan og hann fór þess á leit við Westbrook að hann aðstoðaði við bónorðið.

Bright sendi Westbrook tölvupóst upp á von og óvon. Fimm dögum síðar kom svar: "I´m down. What's the plan?" skrifaði Westbrook.

Bright fékk síðan Westbrook til þess að senda bónorð fyrir sig á Twitter. Það heppnast svona vel því Haycraft sagði já eins og sjá mér hér að neðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×