Handbolti

Jóhann Reynir í HK

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jóhann Reynir í leik með Víkingum.
Jóhann Reynir í leik með Víkingum. Mynd/Valli
HK-ingar hafa fengið til liðs við sig rétthentu skyttuna Jóhann Reyni Gunnlaugsson.

Arnór Þorsteinsson, deildarstjóri Handknattleiksdeildar HK, staðfesti þetta í samtali við Handbolti.org í dag. Arnóri er ætlað að fylla í skarð Tandra Konráðssonar sem hélt til Danmerkur í sumar þar sem hann mun leika með TM Tönder.

HK-ingar hafa misst marga sterka leikmenn úr sínum röðum undanfarnar vikur. Alexander Arnarson, varaformaður handknattleiksdeildar HK, staðfesti í samtali við Fréttablaðið á dögunum að deildin skuldaði leikmönnum liðsins enn laun. Því hefði verið tekin sú ákvörðun að hætta að greiða leikmönnum liðsins laun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×