Körfubolti

Pavel: Það hefur ekkert spennandi tilboð komið

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þessir leikir leggjast bara vel í hópinn,“ sagði Pavel Ermolinskij, landsliðsmaður í körfubolta, en Ísland mætir Dönum í tveimur æfingaleikjum annað kvöld í Ásgarði og á fimmtudagskvöld í Keflavík.

Leikmenn íslenska landsliðsins eru nýkomnir frá Kína þar sem liðið tók þátt á sterku æfingamóti. Ísland hafnaði í öðru sæti mótsins eftir að hafa unnið Svartfjallaland og Makedóníu en tapað fyrir Kína.

„Við vorum að koma úr frábærri ferð þar sem gekk vel og því getum við mætt nokkuð brattir inn í þessa tvö leiki.“

„Danir verða teljast töluvert lakari andstæðingur en þau lið sem við vorum að etja kappi við út í Kína og þetta verð bara flottir leikir.“

„Ég veit ekkert um þetta danska lið, bara ekki hugmynd en ég held að þeir séu neðar en við á alþjóða styrkleikalistanum.“

Eins og áður segir er íslenska landsliðið nýkomið úr góðri ferð frá Kína þar sem körfuboltinn er í hávegum hafður.

„Það var magnað að vera þarna úti. Kínverska landsliðið er í raun eins og Bítlarnir þarna út og þvílíkar stjörnur. Við lékum virkilega vel á þessu móti og menn voru að finna sig vel saman. Burt sé frá þessum sigrum okkar, þá er mikill stígandi í liðinu. Manni finnst eins og það sé að koma ákveðin stöðuleiki á spilamennsku liðsins og það er það sem öll landslið vilja ná fram.“

Pavel var á mála hjá sænska liðinu Norrköping Dolphins á síðustu leiktíð en hann hefur nú þegar ákveðið að yfirgefa liðið.

„Það eru engar formlegar viðræður í gangi milli míns og liða í Evrópu en auðvitað eru alltaf einhverjar viðræður. Ég er kannski ekki mikið sjálfur að spá í þessa hluti og læt það í hendurnar á umboðsmanni mínum. Það hefur í raun ekkert spennandi komið upp ennþá, ekkert sem ég hef haft áhuga á að stökkva á. Vonandi kemur ekki til þess að ég leiki á Íslandi á næsta tímabili, það er ekki á dagskránni hjá mér. Aftur á móti mun ég ekki fara út einungis til þess að fara út og því verð ég að fá spennandi kost.“

Hér að ofan má sjá myndband af viðtalinu í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×