Handbolti

Sunna samdi við sænskt úrvalsdeildarlið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sunna Jónsdóttir
Sunna Jónsdóttir Mynd / Vilhelm
Sunna Jónsdóttir verður ekki í herbúðum Íslandsmeistaraliðs Fram í handknattleik á næsta ári en hún hefur gert tveggja ára samning við sænska liðið BK Heid sem leikur í úrvalsdeildinni þar í landi.

Þetta kemur fram í sænskum fjölmiðlum í dag.

Leikmaðurinn hefur verið í Fram síðastliðin tvö tímabil en áður var hún á mála hjá Fylki.

BK Heid hafnaði í þriðja neðsta sæti deildarinnar og varð liðið að taka þátt í umspili um sæti sitt í úrvalsdeildinni.

Sunna hefur leikið 24 landsleiki fyrir Íslands hönd og því mikill missir fyrir Fram sem verður með gjörbreytt lið á næsta tímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×