Körfubolti

Odom tekinn ölvaður undir stýri

Lamar Odom.
Lamar Odom.
Það er enn vandræðagangur á körfuboltakappanum Lamar Odom og vinum hans og fjölskyldu hefur ekki enn tekist að koma honum í meðferð.

Odom hefur dvalið á hóteli síðustu vikur og er sagður vera í harðri fíkniefnaneyslu.

Hann var handtekinn aðfararnótt föstudags þar sem hann var ölvaður undir stýri. Lögreglan sá hann keyra allt of hægt á hraðbraut og þess utan gekk honum mjög illa að keyra beint.

Það tók Odom nokkurn tíma að stöðva bílinn sinn og er hann loks gerði það leyndist engum að hann væri ölvaður.

Odom er ekki samningsbundinn neinu félagi en aðeins eru tvö ár síðan hann var valinn besti sjötti leikmaður NBA-deildarinnar. Odom stendur í skilnaði við konu sína, Khloe Kardashian, þessa dagana.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×