Körfubolti

Kevin Durant og allt OKC-liðið í Leifsstöð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daniel Orton og Kevin Durant
Daniel Orton og Kevin Durant mynd / vf.is
Það er orðið nokkuð algengt að stórstjörnur í NBA-deildinni millilendi í Keflavík á leið sinni til Evrópu.

Leikmenn Oklahoma City Thunder voru mættir þar í gær og náði starfsmaður vallarins mynd af sér með þeim Kevin Durant og Russell Westbrook.

Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta en þar má einnig sjá myndir af þeim félögunum saman á Leifsstöð, en hér má sjá myndina.

Liðið var á leiðinni til Tyrklands þar sem þeir verða næstu þrjá daga við æfingar. Næst heldur liðið til Manchester. OKC mun leika æfingaleiki á báðum stöðum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×