Körfubolti

Zachary með 40 stig í þriðja leiknum í röð - úrslit kvöldsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zachary Jamarco Warren.
Zachary Jamarco Warren. Mynd/Stefán
Zachary Jamarco Warren var ekki nógu góður fyirr Snæfell í Domnios-deildinni í körfubolta en hann hefur verið óstöðvandi með Skagamönnum í fyrstu þremur umferðum 1. deildar karla. Zachary braut 40 stiga múrinn í þriðja leiknum í röð í kvöld.

ÍA er í hópi með Tindastól og Þór Akureyri á toppi deildarinnar en öll hafa liðin unnið þrjá fyrstu leiki sína í 1. deildinni í vetur. ÍA vann í kvöld 20 stiga sigur á nýliðunum úr Vængjum Júpiters en þetta var fyrsti heimaleikur Skagamanna.

Zachary Jamarco Warren var með 43 stig og 9 stoðsendingar í kvöld en meðaltöl hans í fyrstu þremur leikjum ÍA eru 43,0 stig og 8,7 stoðsendingar. Hann var búinn að skora 46 stig og 40 stig í hinum tveimur leikjum liðsins.

Breiðablik og Höttur unnu líka í kvöld. Breiðablik vann 22 stiga sigur á Augnabliki í Kópavogsslag þar sem Jerry Lewis Hollis skoraði 42 stig og Höttur vann sjö stiga útisigur á Fjölni, 90-83, þar sem að Austin Magnus Bracey skoraði 25 stig.

Hér fyrir neðan má sjá úrslit og stigaskor í öllum leikjum kvöldsins í 1. deild karla í körfubolta.



Breiðablik-Augnablik 108-86 (25-23, 27-24, 28-13, 28-26)

Breiðablik: Jerry Lewis Hollis 42/9 fráköst, Þorsteinn Gunnlaugsson 16/5 fráköst, Björn Kristjánsson 16, Pálmi Geir Jónsson 6/7 fráköst, Helgi Hrafn Ólafsson 6, Halldór Halldórsson 6, Þröstur Kristinsson 5, Egill Vignisson 4, Ásgeir Nikulásson 3, Haukur Þór Sigurðsson 2, Rúnar Pálmarsson 2.

Augnablik: Sigmar Logi Björnsson 26, Birkir Guðlaugsson 24, Hjalti Valur Þorsteinsson 10, Leifur Steinn Árnason 10/4 fráköst, Gylfi Már Geirsson 9, Hákon Már Bjarnason 5/5 fráköst/5 stoðsendingar, Heimir Snær Jónsson 2.



Fjölnir-Höttur 83-90 (27-16, 13-29, 21-18, 22-27)

Fjölnir: Ólafur Torfason 25/20 fráköst/5 stoðsendingar, Daron Lee Sims 18/9 fráköst, Páll Fannar Helgason 18/5 fráköst, Davíð Ingi Bustion 10/9 fráköst, Garðar Sveinbjörnsson 6, Emil Þór Jóhannsson 4, Andri Þór Skúlason 2.

Höttur: Austin Magnus Bracey 25/7 fráköst/7 stoðsendingar, Vidar Orn Hafsteinsson 19/10 fráköst, Frisco Sandidge 18/13 fráköst, Eysteinn Bjarni Ævarsson 17/5 fráköst, Andrés  Kristleifsson 5, Hreinn Gunnar Birgisson 4/5 fráköst, Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar 2.

 

ÍA-Vængir Júpiters 110-90 (28-17, 27-26, 37-23, 18-24)

ÍA: Zachary Jamarco Warren 43/5 fráköst/9 stoðsendingar, Áskell Jónsson 20/5 stoðsendingar, Birkir Guðjónsson 10/4 fráköst, Sigurður Rúnar Sigurðsson 7, Jón Rúnar Baldvinsson 7/8 fráköst, Ómar Örn Helgason 7/14 fráköst, Dagur Þórisson 6/4 fráköst, Þorsteinn Helgason 5, Erlendur Þór Ottesen 3, Hilmar Örn Arnórsson 2/6 fráköst.

Vængir Júpiters: Sindri Már Kárason 32, Brynjar Þór Kristófersson 17/8 fráköst, Árni Þór Jónsson 15/4 fráköst, Jón Rúnar Arnarson 13, Einar Þórmundsson 7/4 fráköst/6 stoðsendingar, Halldór Steingrímsson 3, Arthúr Möller 2/4 fráköst, Hörður Lárusson 1/5 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×