Körfubolti

Bulls mun ekki halda aftur af Rose

Derrick Rose.
Derrick Rose.
NBA-deildin fer á fullt í næstu viku og þá loksins fá NBA-aðdáendur að sjá Derrick Rose, leikmann Chicago Bulls, aftur á parketinu.

Rose lék ekkert með Bulls í fyrra vegna meiðsla. Hann hefði hugsanlega getað farið fyrr af stað en Bulls vildi ekki taka neinar áhættur.

Félagið ætlar ekki að fara sparlega með hann í upphafi tímabils. Rose er klár í að spila af fullum krafti.

"Derrick vill spila enda búinn að vera frá í heilt ár. Hann er algjörlega tilbúinn í slaginn. Hann mun spila eins mikið og hann þarf að gera. Við ætlum ekkert að halda aftur af honum," sagði John Paxson, varaforseti Bulls.

Rose hefur gengið vel á undirbúningstímabilinu og var að skora um 20 stig að meðaltali í síðustu leikjum Bulls.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×