Körfubolti

Hairston til liðs við Stjörnuna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Junior Hairston í leik með Þór Þorlákshöfn árið 2012
Junior Hairston í leik með Þór Þorlákshöfn árið 2012 mynd/vilhelm
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur náð samkomulagi við Junior Hairston um að leika með liðinu á tímabilinu en félagið sagði upp samningi sínum við Nasir Robinson á dögunum.

Þetta kemur fram á fésbókarsíðu körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar.

Hairston var á mála hjá Þór Þorlákshöfn seinnipart tímabilsins 2011-2012 og átti frábæra spretti með liðinu.

Hairston gæti leikið með Stjörnunni í 32-liða úrslitum Powerade-bikarsins annað kvöld þegar liðið mætir Hött.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×