Handbolti

FH með góðan sigur á Selfyssingum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steinunn Snorradóttir átti stórleik í kvöld og skoraði tíu mörk
Steinunn Snorradóttir átti stórleik í kvöld og skoraði tíu mörk myndir/daníel
FH vann Selfoss, 23-18, í Olís-deild kvenna í handknattleik í kvöld en leikurinn fór fram í Kaplakrika.

Staðan var 12-11 fyrir heimastúlkur í hálfleik og bættu þær leik sinn enn meira í þeim síðari.

Hornamaðurinn Steinunn Snorradóttir var atkvæðamest í liði FH með tíu mörk og átti stórleik.

Kara Rún Árnadóttir skoraði sex mörk í liði Selfyssinga í kvöld.

FH er í fimmta sæti deildarinnar með sex stig en Selfyssingar í því níunda með fjögur stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×