Handbolti

Snorri Steinn var nærri því að semja við Val

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Snorri Steinn reiknar með því að spila áfram með GOG í Danmörku næsta vetur.frttablaðið/vilhelm
Snorri Steinn reiknar með því að spila áfram með GOG í Danmörku næsta vetur.frttablaðið/vilhelm fréttablaðið/vilhelm

Landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson verður að óbreyttu í herbúðum danska liðsins GOG á næstu leiktíð. Hávær orðrómur hefur verið uppi um að Snorri Steinn væri á leið í herbúðir Valsmanna þar sem Ólafur Stefánsson þjálfar.

„Ég hef talað helling við Valsmenn og Óla. Ég get alveg viðurkennt það að ég var nálægt því að koma heim. Það fór ansi nærri,“ segir Snorri.

Ýmsar ástæður hafi hins vegar komið í veg fyrir að af samstarfinu gæti orðið.

„Það verður því miður að bíða aðeins. Það hefði verið spennandi og gaman,“ segir Snorri sem er samningsbundinn GOG.

„Ég verð úti í eitt ár í viðbót og þá líklegast í Danmörku,“ segir Snorri. Íslenska landsliðið mætir Hvíta-Rússlandi og Rúmeníu í lokaleikjum sínum í undankeppni EM 2014. Fjölmarga lykilmenn vantar í íslenska liðið en liðið hefur þegar tryggt sæti sitt í lokakeppninni.

„Hópurinn er auðvitað töluvert vængbrotinn sem skrifast að einhverju leyti á það hvað við erum í góðri stöðu. Það eru eflaust einhverjir sem hefðu harkað af sér og spilað þessa tvo leiki ef þetta hefði verið upp á líf og dauða,“ segir Snorri.

Snorri segir að leikurinn gegn Rúmeníu 16. júní verði sérstakur þegar Ólafur Stefánsson verður kvaddur. Hann minnir á að Ólafur sé líklega besti handboltamaður sögunnar.

„Það gera sér ekki allir grein fyrir því hve stórt það er. Að vera enn 39 ára og nánast aldrei dalað eða eitthvað svoleiðis. Hann hefur verið besti handboltamaður í tíu ár eða meira. Það leikur það enginn eftir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×