Menning

Nína Dögg leikkona í mögnuðu verki

Marín Manda skrifar
Nína Dögg Filippusdóttir
Nína Dögg Filippusdóttir
Nína Dögg Filippusdóttir leikur eina af dætrunum í  verkinu Hús Bernhörðu Alba. 

„Ég leik næstyngstu systurina, Martirio sem er hálfgerð martröð. Þetta verk er bara svo magnað og fullt af sterkum og stórum tilfinningum og hver einasti karakter þarna er fullur af sorg, þrá og vilja,“ segir Nína Dögg Filippusdóttir leikkona, sem fer með eitt af hlutverkunum í Húsi Bernhörðu Alba.

Verkið er eitt þekktasta verkið eftir Federico García Lorca og var frumsýnt í Gamla bíói síðastliðinn föstudag í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Sagan fjallar um ekkjuna Bernhörðu Alba sem fyrirskipar að dætur hennar fimm verði lokaðar inni í átta ár ásamt þjónustustúlkum án samskipta við umheiminn til að syrgja fráfall föður þeirra.

„Þetta fjallar um kúgun en hún Kristín er stórkostlegur listamaður og það er búið að vera algjört ævintýri og unun að vinna með henni. Hún er með svo sterka sýn og tekur inn fullt af baráttukonum úr samtímanum sem eru að berjast fyrir frelsi og jafnrétti sem innskot í sýninguna svo hún fer ansi djarfa leið.“

Fram undan hjá Nínu Dögg eru ýmis spennandi sjónvarps-og kvikmyndaverkefni en jafnframt mun hún leika í sýningu Borgarleikhússins Furðulegt háttalag hunds um nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×