Útflutningur á göldrum Friðrika Benónýsdóttir skrifar 17. nóvember 2013 16:00 Anna Lea Friðriksdóttir: "Við náttúrulega vonum að fólk nýti sér þetta og prófi galdrana.“ Fréttablaðið/Stefán
Galdraskræða eftir Skugga er komin út í nýrri og vandaðri útgáfu Lesstofunnar. Þar má finna teikningar af galdrastöfum, uppskriftir að göldrum auk þess sem þjóðsögur og þjóðlegur fróðleikur blandast inn í. "Galdraskræða kom upphaflega út árið 1940. Var þá handskrifuð og handteiknuð og gefin út í hálfgerðu ljósriti í mjög fáum eintökum,“ segir Anna Lea Friðriksdóttir, einn aðstandenda Lesstofunnar. „Hún hefur verið ófáanleg lengi og gengið manna á milli í þessu handriti, þannig að okkur þótti full ástæða til að gefa hana út aftur.“Höfundurinn kallar sig Skugga, hver var hann? „Hann hét Jochum M. Eggertsson, var ættaður úr Þingeyjarsveit, búfræðingur að mennt og bróðursonur Matthíasar Jochumssonar. Hann grúskaði í ýmsu og skrifaði nokkrar bækur undir skáldanafninu Skuggi, var mjög beittur penni og deildi hart á samfélagið í því sem hann skrifaði.“ Galdraskræða inniheldur uppskriftir að göldrum, galdrastafi og slíkt og Anna Lea segir Skugga hafa hugsað bókina sem yfirlit um hvítagaldur á Íslandi. „Hann safnaði þessu saman úr ýmsum handritum sem hann tiltekur aftast í bókinni. Þetta eru sem sagt allt góðir galdrar; varnargaldrar, ástargaldrar og svona hitt og þetta. Meining höfundarins var að skrifa líka rit um svartagaldur en það er ekki vitað til þess að sú fyrirætlun hafi komist í framkvæmd.“Hvers vegna eruð þið að gefa þetta út núna, er þetta eitthvað sem fólk mun nýta sér? „Við náttúrulega vonum að fólk nýti sér þetta og prófi galdrana. Aðallega er þetta samt merkileg heimild um þetta tímabil í sögu Íslands og er stærsta heildarsafn af göldrum sem fáanlegt er. Auk þess er mikill þjóðlegur fróðleikur þarna inn á milli og þjóðsögurnar fléttast inn í, þannig að þetta er mjög skemmtileg lesning.“ Þórarinn Eldjárn skrifar formála þar sem hann rekur ævihlaup Skugga og Anna Lea segir að Þórarinn sé annar tveggja manna á landinu sem sé sérfróður um hann. „Hinn er Megas og við lögðum ekki alveg í hann.“ Bókin er mjög vönduð að allri gerð enda segir Anna Lea að Lesstofan leggi metnað sinn í að vanda til verka í útgáfum bóka sinna. „Þessi bók hefur fylgt okkur lengi og við vorum alltaf ákveðin í að gefa hana út, spurningin var bara hvernig við ættum að gera það. Þegar við vorum búin að tryggja okkur útgáfuréttinn heyrðum við af því fyrir algjöra tilviljun að heill bekkur í Listaháskólanum væri að fást við það að teikna alla galdrastafina og rúnaletrið upp á nýtt þannig að við fórum í samstarf við þau og þá aðallega einn nemi í grafískri hönnun, Arnar Fells Gunnarsson, sem tók við keflinu, gerði bókina að lokaverkefni sínu frá Listaháskólanum og vann hana síðan áfram með okkur. Þannig að hún er með dálítið öðru sniði en upphaflega bókin.“ Viðtökur við bókinni hafa verið góðar og nú er ensk útgáfa í bígerð. „Já, við höfum fundið fyrir mjög miklum áhuga alls staðar að, erum búin að senda bók til Rússlands, Bandaríkjanna, Þýskalands og Danmerkur, og munum halda áfram að koma henni á markað sem víðast. Það er greinilega miklu meiri áhugi á galdri en nokkur hefði getað ímyndað sér.“
Menning Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið Myndasyrpa úr Bakgarðshlaupinu Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Krakkatían: Dýrin, heimsálfur og teiknimyndir Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira