Körfubolti

Helena með sextíu prósent þriggja stiga nýtingu í Evrópukeppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Daníel
Helena Sverrisdóttir hefur verið sjóðheit fyrir utan þriggja stiga línuna í Evrópukeppninni í vetur en hún spilar nú með ungverska liðinu Aluinvent Miskolc í EuroCup.

Helena hitti úr 12 af 20 þriggja stiga skotum sínum í sex leikjum sínum í riðlakeppninni sem gerir sextíu prósent nýtingu og kom henni í 5. sætið á lista yfir bestu skyttur keppninnar.

Helena átti meðal annars tvo leiki þar sem hún hitti úr öllum þremur þriggja stiga skotum sínum. Helena skoraði 14,8 stig að meðaltali á 24,0 mínútum í leik og var sú nítjánda stigahæsta.

Helena skoraði 31 stig og hitti úr 5 af 8 þriggja stiga skotum sínum þegar Miskolc tapaði í Mið-Evrópu-deildinni í gærkvöldi. Stórleikur hennar dugði því miður ekki til sigurs en Miskolc tapaði 63-66.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×