Körfubolti

NBA í nótt: Spurs í metaham og Miami á toppinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
San Antonio vann sinn átjánda leik í röð í NBA-deildinni í nótt og jafnaði þar með félagsmet.

San Antonio vann Indiana, 103-77, en bæði lið eru meðal þeirra bestu í deildinni. Indiana hefur þó átt erfitt uppdráttar að undanförnu en liðið vann aðeins átta af sautján leikjum sínum í síðasta mánuði.

Tony Parker skoraði 22 stig fyrir Spurs og Boris Diaw bætti við fjórtán en með sigrinum jafnaði félagið átján ára gamalt met.

Paul George skoraði sextán stig fyrir Indiana sem hefur tapað sex af síðustu sjö leikjum sínum og misst toppsæti austurdeildarinnar til meistaranna í Miami Heat.

Miami vann Toronto, 93-83. LeBron James var með 32 stig, Chris Bosh átján og þá átti Chris Andersen góðan leik en hann var með þrettán stig og nýtti öll fimm skot sín í leiknum.

Þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu sem Miami er í efsta sæti austurdeildarinnar.



Charlotte vann Washington, 100-94, og kom í veg fyrir að síðarnefnda liðið tryggði sér sæti í úrslitakeppninni í fyrsta sinn í sex ár.

Aðeins þrjú lið hafa beðið lengur eftir leik í úrslitakeppni en Wizards er í sjötta sæti austurdeildarinnar og er með sæti í úrslitakeppninni innan seilingar.

Kemba Walker (21/10 stoðs.) og Al Jefferson (19/11 frák.) voru báðir með tvöfalda tvennu fyrir Charlotte sem var ellefu stigum undir í fjórða leikhluta.



Atlanta vann loksins sigur er liðið hafði betur gegn Philadelphia, 103-95. Atlanta hafði tapað sex leikjum í röð og heldur liðið í áttunda sæti austurdeildarinnar með naumindum.

Atlanta hefur aðeins unnið sjö af síðustu 27 leikjum sínum en New York hefur verið á fínum spretti og vann Utah í nótt, 92-83. Knicks er þó enn í níunda sætinu og útlit fyrir spennandi baráttu liðanna á lokasprettinum.

Spennan í sömu baráttu vestanmegin er ekki minni en Dallas, Memphis og Phoenix eru hnífjöfn í 7.-9. sæti deildarinnar. Memphis vann góðan sigur á Denver í nótt, 94-92, en hin tvö liðin spiluðu ekki í nótt.

Úrslit næturinnar:

Charlotte - Washington 100-94

Indiana - San Antonio 77-103

Atlanta - Philadelphia 103-95

Detroit - Milwaukee 116-111

Miami - Toronto 93-83

Chicago - Boston 94-80

Minnesota - LA Clippers 104-114

New Orleans - Sacramento 97-102

Denver - Memphis 92-94

Utah - New York 83-92

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×