Körfubolti

Duncan frábær og Spurs einum sigri frá því að vinna vestrið | Myndband

Fátt getur komið í veg fyrir að San Antonio Spurs vinni vestrið í NBA-deildinni í körfubolta en liðið er nú aðeins einum sigri frá því.

San Antonio vann Dallas Mavericks í níunda skiptið í röð í Texas-slagnum í nótt, 109-100, á heimavelli Dallas og getur með einum sigri til viðbótar eða einu tapi hjá Oklahoma unnið vesturdeildina og verið með heimaleikjaréttinn þar út alla úrslitakeppnina.

Spurs lék án franska leikstjórnandans Tonys Parkers í nótt en PattyMills leysti hann af með miklum sóma og var stigahæstur í liðinu með 26 stig auk þess sem hann gaf 6 stoðsendingar.

Höfðinginn Tim Duncan átti einnig frábæran leik en hann skoraði 20 stig og tók 15 fráköst. Þá spilaði KawhiLeonard einnig mjög vel og skoraði 16 stig og reif niður 16 fráköst, þar af 6 sóknarfráköst.

Duncan, sem er 37 ára gamall, er á sínu 17. ári í NBA og hefur á hverju einasta tímabili komist í úrslitakeppnina með San Antonio. Þetta er 15. skiptið á hans Spurs-ferli sem liðið vinnur fleiri en 50 leiki og þá hefur hann auðvitað orðið meistari fjórum sinnum. Magnaður ferill.

Í spilaranum hér að ofan má sjá helstu atvik gærkvöldsins.

Fimm flottustu tilþrif næturinnar:


Golden State Warriors varð fyrir minniháttar áfalli í nótt þegar liðið tapaði fyrir Denver Nuggets á heimavelli, 100-99. Þar með er nær öruggt að liðið kemst ekki upp fyrir Portland í 5. sætið og mætir líklega Clippers í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

KennethFaried var hetja gestanna en hann skoraði sigurkörfuna yfir DraymondGreen þegar hálf sekúnda var eftir. Í heildina skoraði hann 18 stig og tók 17 fráköst en Rússinn Timofey Mozgov fór gjörsamlega hamförum undir körfunni og skoraði 23 stig og tók 29 fráköst.

Stephen Curry var stigahæstur heimamanna í Golden State með 24 stig auk þess sem hann tók 7 fráköst og gaf 6 stoðsendingar en KlayThompson skoraði 21 stig.

Úrslit næturinnar:

Dallas Mavericks - San Antonio Spurs 100-109

Golden State Warriors - Denver Nuggets 99-100

Staðan í deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×