Körfubolti

Kobe vill vera með í ráðum hjá Lakers

Kobe meiddist illa í vetur.
Kobe meiddist illa í vetur. vísir/getty
LA Lakers er í þjálfaraleit eftir að Mike D'Antoni var látinn fara frá félaginu. Skiptar skoðanir eru um það hver sé rétti þjálfarinn fyrir Lakers.

Stjarna Lakers-liðsins, Kobe Bryant, vill skipta sér af málum eins og hans er von og vísa. Kobe segir að félagið hafi ekki ráðfært sig við hann þegar síðustu tveir þjálfarar voru ráðnir og hann er ekki sáttur við það.

"Þetta er erfiður vinnustaður. Ef menn eru ekki að ná árangri þá lifa þeir ekki af," sagði Bryant.

Kobe spilaði aðeins sex leiki í vetur en ætti að koma sterkur til leiks næsta vetur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×